28 May 2013

Big love

This one followed me home... Can I please keep it? Will love forever <3

26 May 2013

Þessi stóðst prófið...


Þennan Smashbox gel eyeliner í Deep purple keypti ég fyrir nokkru síðan, en hef bara ekki fengið hann til að virka... fannst hann mjög þurr og erfiður að setja á, þannig að hann fékk að sitja í skúffunni.

En.... í dag fór ég í dekur og vildi ekki vera alveg hrá í framan (óþarfi að hræða fólk þó ég fari út úr húsi) og ákvað að gefa þessu litla saklausa greyi séns. Setti hann á mig og vatnsheldann maskara og 
"ég get svo svarið það" (á innsoginu) ....hann hreyfðist ekki neitt!! 
Við erum að tala um andlitsnudd og sturtu og alles og ég er að fara að taka hann af mér fyrst núna. 

þessi fer klárlega með mér til Spánar í sumar...



Mæli með þessum litla gaur :)

25 May 2013

Þriggja ára afmæli




Rambaði inn á bloggið mitt sem enginn les nema ég og sá að það er akkúrat 3 ár síðan ég stofnaði þetta skrímsli... Vúhú...
Hvað þýðir það - jú - setja inn þessa mynd í tilefni dagisns - sem mér finnst alveg vera snilld.

Góðar stundir :)

24 May 2010

Sönn orð!


Lífið er of stutt til að vakna og iðrast einhvers.

Elskaðu fólkið sem kemur vel fram við þig. Gleymdu þeim sem gera það ekki.

Trúðu því að allt sem gerist hafi tilgang. Ef að þú færð annað tækifæri, gríptu það með báðum höndum. Ef að það breytir lífi þínu, leyfðu því að gerast.

Enginn sagði að lífið væri auðvelt, aðeins að það væri þess virði.