Þennan Smashbox gel eyeliner í Deep purple keypti ég fyrir nokkru síðan, en hef bara ekki fengið hann til að virka... fannst hann mjög þurr og erfiður að setja á, þannig að hann fékk að sitja í skúffunni.
En.... í dag fór ég í dekur og vildi ekki vera alveg hrá í framan (óþarfi að hræða fólk þó ég fari út úr húsi) og ákvað að gefa þessu litla saklausa greyi séns. Setti hann á mig og vatnsheldann maskara og
"ég get svo svarið það" (á innsoginu) ....hann hreyfðist ekki neitt!!
Við erum að tala um andlitsnudd og sturtu og alles og ég er að fara að taka hann af mér fyrst núna.
þessi fer klárlega með mér til Spánar í sumar...
Mæli með þessum litla gaur :)

No comments:
Post a Comment